13september
Var í tíma í morgun sem heitir aðferðir og forysta 1. Var búinn að heyra að þetta væru svona ræðutímar...sko þar sem við færum með ræður...og að Þórir Páll yrði kennari...hann er búinn að vera á Bifröst síðan hann var nemandi, svona um 1950 og eitthvað.....en svo birtist GUÐBJÖRG Edda Björgvinsdóttir......betur þekkt sem Edda Björgvins a.k.a Stella Löve....ég hef alltaf haft gaman af henni sem leikkonu
....en þarna sá ég aðra hlið á henni og ég lít björtum augum á þennann áfanga, en í honum lærum við að koma fram og tala frammi fyrir hóp af fólki....nauðsynlegur áfangi sem betur hefði verið í framhaldsskóla.
þá er það lögfræði...pasta....fótbolti...lögfræði....magni og svo dreyma lögfræði!!
þangað til næst....................
13september
Þetta er náttla bara rugl.....fyrsta verkefni og allir að fara yfir um....ég búinn að sleppa liverpool leik......ussusss. Gæti verið að maður sé að finna fyrir snefli af sjálfsaga....allavega þá er stefnan að horfa á magna í kveld.....vona að kallinn endi í 2.sæti. Held að hann vilji ekkert sérstaklega túra með þessum gaurum......vona að Toby vinni

.....Svo styttist í snillinginn Nick Cave....fer á hann á laugardag...það verður æði....ródtripp í bæinn með Júlla, Dísu og Maju.....ætlum út að borða og gera e-h skemmtilegt.
---------------------einhverntímann seinna------------------------------
12september
Jæja....nú er ballið byrjað...fyrsti kennsludagur var í morgun...pínu erfiður
brillijant viku á undan. Sú vika kallast leiðtogavika og er henni ætlað að
kynna nemendur skólanum og námsefninu.....þjappa þeim saman og sýna
hvað þarf til til þess að vera leiðtogi. Svo byrjaði arðsemisgreining hjá stefáni
kalmans...ussusss....ég ætla að verða lögfræðingur með viðskiptalegu ívafi og
því er það nauðsynlegt að taka þessu alvarlega...ég er búinn að finna fyrir því að
þetta er töluvert öðruvísi enn að vera í frumunni. Jæja er að passa tvo skæruliða sem eru að sýna mér hvernig eigi að halda á köttum....ætla bjarga emilíönu
.................leiter..............................