23október
19október
90 min sen ég fć ekki aftur
Ég er með stóran móral.....STÓRAN....ég ákvað að kvöldið í kvöld væri upplagt til að horfa á fótbolta.....það komu tveir leikir til greina......Bordeux - Liverpool annars vega og hins vegar Chelsea - Barcelona.....ég valdi Chelsea leikinn, Eiður Smári að snúa aftur á brúnna...lalalalala.......þetta voru sko 90 mínútur sem ég fæ aldrei aftur. Hvílík leiðindi......búið að byggja þetta upp eins og leik aldarinnar og ég missi svo af Liverpool sigra á útivelli....sem hefur nú ekki verið fastur liður hjá mínum mönnum upp á síðkastið.Meira af fótbolta....lenti í smá "debate" við maju no.2 í gær um fótbolta og stelpur. Sko það er bara staðreynd að karlmenn eru betur byggðir fyrir þetta sport og ef það á að setja karlar vs. konur þá myndu karlmennirnir rúlla þeim upp. Stelpur geta verið góðar í fótbolta, en þá einungis ef þær eru að spila við stelpur.......og þá er inn í því að það er ekki í myndinni að "sumar" stelpur eru miklu betri en sumir strákar. Auðvitað geta stelpur unnið stráka.....ergo litlu valsstelpurnar sem unnu Nördanna um daginn....það er ekki marktækt....það væri eins og að egna saman Háskólaliði vs Grunnskólaliði í spurningakeppni.
17október
Veturliđi
Þá er vinur okkar allra hann Veturliði að kíkja á okkur, allavega hérna á Bifröst. Búið að vera vel hvasst og enn kaldara. Ég er búinn að ná mér í kvef-veiki nr 2 á þessu ári, gott að klára þann pakka bara strax. Það styttist í próf og svo missó, vantar alveg að það kæmi smá slaki í prógrammið hérna uppfrá, þá þyrfti maður ekki að vera með móral yfir kæruleysi........talandi um það, þá er búið að áætla löngu tímabæra ferð á snjóboltann stóra Vatnajökul, fara þar og brettast, drekka, spila.......taka smá kæruleysi á þetta......sonna fyrir prófin...o&o........et
12október
LETI
Vá hvað dagurinn í dag er búinn að vera mikil leti, búinn að liggja upp í rúmi og glápa . gæti stafað af því að í gær var frumu(r síðan í fyrra) hittingur á Hraunsnefi í gær.......hressandi kvöld.........svo svaf maður út í dag og var enn þreyttari fyrir vikið.......held að það sé skárra að djamma fram á nótt og vakna svo kl 8:00 í skólann............hvet svo fólk eindregið að hlusta á nýja efnið frá Pétri Ben......................hastalavista.............
05október
il portale dello studente
Strákurinn búinn að finna sér áhugaverðan skóla til að fara í skiptinám, hann er á Ítalíu og heitir Universitá Carlo Cattaneo. Hann er staðettur í héraði rétt fyrir utan Milanó borg og er norðanlega á Ítalíu. Stutt í alpanna, Frakkland, Barcelona. Ég held að það sé alveg málið að fara út í svona nám, hvert sem maður fer.03október
Bif aftur
Kominn á Bifröst aftur, dottinn í lærdóm til að detta úr lærdóm......það er meira hvað stundum geta verið miklir mánudagar í manni.....svo er allt að verða hérna á öðrum endanum.....það endar kannski með því að maður finni sér skóla í USA til að nema þessi fræði hérna.........þetta er allavega mál sem verður skoðað í skiptinámi......vona samt að ástandið hérna lagist eftir þessa önn.....og er ég þá "líbó" á þetta lið.....að gefa þeim þennann tíma.................allavega........bauðst að passa litla strákinn minn um helgina, sko samt strákinn þeirra Hafþórs og Margrétar (enda er það ekki til að passa sín eigin börn!!!), hann Viktor Blæ. Við gáfum öndunum brauð og hlustuðum á Mikka Ref og dýrin í hálsaskógi í bílnum á rúntinum.....hlakka alltaf til að fara í bæinn að hitta litla frænda.........
p.s. búinn að setja nokkrar myndir inn af Bifröst og af Viktori sætabrauð
30september
Heima
Mikið rosalega er gott að komast heim, leggjast í rúmið sitt og hlusta á tónlist, kíkja í nuddbaðkarið og fá mömmumat. Það er búin að vera heljartörn á Bifröst undanfarna daga og mikið að læra, maður hreinlega kemst ekki yfir allt, gæti reyndar stafað af því að það eru nokkur önnur áhugamál en að læra, eins og að spilaog glápa á fótbolta, "mingla" sem er kannski bara orð yfir skemmtanir. Ég hef nú reyndar fundið fyrir því að þær eru að taka sinn toll og því vert að endurskoða það aðeins betur.Svo varég að komast að því hversu háður maður er tölvunni sinni......mín var eitthvað að bila svo ég fékk lánstölvu hjá skólanum...hún dó enda var hún orðinn eldri en bílinn minn...eða svona næstum því.....fór svo með mína í opin kerfi og ætlaði að láta þá gera við......skjárinn var oft að detta út...."fade to black".....nei nei......gaurinn hringdi og sagði að móðurborðið væri ónýtt og það kostaði 100kall að gera við það...ass if....sendi hana til danveldis þar sem frændur tríta frændur....
nóg í bili.......ciao
20september
Ţađ er bar svona
"....######## ####......."16september
Bifröst
Í sumar keypti ég mér loksins myndavél, ákvað þá að kaupa sonna sem-alvöru vél og varð fyrir valinu Olympus E-500 DSLR. Er ekki búinn að vera sérstaklega duglegur að læra á hana, enda er alveg endalaust sem hægt er að gera á þetta dót. Allavega.....fór ég og Dísa í göngutúr um Bifröst...nánar tiltekið niður að Hreðavatni og tókum nokkrar myndir, sem eru í myndalbúminu á síðunniNúna sit ég yfir lögfræðinni....sem er helmingi skemmtilegri en helvítis arðsemisgreiningin...hún kemur frá skrattanum.....stefni á að klára lögfræði og vinnuréttinn yfir helgina ásamt því að fara á tónleikana með NICK CAVE...þeir eru á morgunn í höllinni......það verður GEÐVEIKT.....búinn að hlakka til í langan tíma
..............babe I´m on fire................