Spenna
Hvað er málið með Ísland, Bifröst. Hér gerist ekkert.....akkúrat ekkert. Ef við værum að túra um landið þá yrði ekkert mál fyrir okkur að stoppa HVAR SEM ER og spyrja til vegar....alveg sama þó svo að manneskjan sem við myndum spyrja væri gjörsamlega ókunnug....einnig á túrnum ef einhver myndi stinga upp á "short cut"....þá yrði það samþykkt samhljóða......Út af þessu hef ég einsett mér að fara í túr sem ég hef verið að hugsa um í dálítinn tíma....West 2 East...USA....og er þá málið að taka eins mikið af "short cut" og hægt er....stoppa alltaf þegar skítugt hús með skilti sem stendur næstum því motel á og gista þar....allir sem vilja koma með eru velkomnir...en það er einungis pláss fyrir einn til tvo stráka og tvær stelpur.....það er svona fyrirmyndarformúla fyrir góðri ferð......
05. júní 2007 klukkan 13:52
ebbiniho
ebbiniho