Segjandi er allt sínum vini
Er það.....segir maður vinum sínum allt ? Er ekki alltaf eitthvað sem maður á sem leyndarmál. Ég veit fyrir mína parta að þá eru alltaf og verða alltaf til leyndarmál. Þannig er það hérna upp á Bifröst. Þó svo að samfélagið sé lítið að þá gerist hellingur hérna uppfrá.....yfirleitt snertir það þó samskipti kynjanna en þó kemur fyrir að það koma einhver ný andlit hingað uppeftir í heimsókn en þá er bara tekið á þeim málum.....anyways.....þá vorum við að tala um leyndarmál......hversu góður þarf vinur þinn að vera til að þú getir sagt honum allt......og þá meina ég ALLT.....eins og þegar þú pissaðir yfir tengdamömmu þína í fellihýsinu......þegar þú gubbaðir af þynnku á matarboðið á jólunum...með hálfa ættina á borðinu.....þegar þú svafst hjá "frænku" fyrrverandi kærustu þinnar....og svo mætti lengja telja. Hvað leynist svo í myrka horninu ykkar kæru vinir...???
01. júní 2007 klukkan 03:09
ebbiniho
ebbiniho