Prófin
Þá eru prófin hálfnuð. Segja má að fyrsta háskólaprófið hafi gefið manni á kjammann. Það var langt og strembið og voru margir hverjir mjög óánægðir með þetta próf, stór hluti sem náði bara að klára 2/3 af prófinu. Byrjaði sem sagt með látum. Svo kom lögfræðin í gær. Held að það hafi gengið ágætlega, en lögfræði er eins og lögfræði er.....þetta gæi verið rétt og gæti það ekki. Allavega, þá er ég núna á leiðinni í lokapróf í aðrsemisgreiningu....fagið sem hæsta falltíðnin er í .....en ég er bara bjartsýnn á þetta próf. Í dag, kvöld og í nótt tekur svo við lestur fyrir munnlegt próf í vinnurétti...það verður massaerfitt...........leiter......
22. nóvember 2006 klukkan 17:51
ebbiniho
ebbiniho