09september

Nýtt Blogg


http://eythor.wordpress.com/
09. september 2007 klukkan 16:52
ebbiniho
Engin athugasemd
05júní

Spenna

Hvað er málið með Ísland, Bifröst. Hér gerist ekkert.....akkúrat ekkert. Ef við værum að túra um landið þá yrði ekkert mál fyrir okkur að stoppa HVAR SEM ER og spyrja til vegar....alveg sama þó svo að manneskjan sem við myndum spyrja væri gjörsamlega ókunnug....einnig á túrnum ef einhver myndi stinga upp á "short cut"....þá yrði það samþykkt samhljóða......Út af þessu hef ég einsett mér að fara í túr sem ég hef verið að hugsa um í dálítinn tíma....West 2 East...USA....og er þá málið að taka eins mikið af "short cut" og hægt er....stoppa alltaf þegar skítugt hús með skilti sem stendur næstum því motel á og gista þar....allir sem vilja koma með eru velkomnir...en það er einungis pláss fyrir einn til tvo stráka og tvær stelpur.....það er svona fyrirmyndarformúla fyrir góðri ferð......Svalur
05. júní 2007 klukkan 13:52
ebbiniho
2 athugasemdir
01júní

Segjandi er allt sínum vini

Er það.....segir maður vinum sínum allt ? Er ekki alltaf eitthvað sem maður á sem leyndarmál. Ég veit fyrir mína parta að þá eru alltaf og verða alltaf til leyndarmál. Þannig er það hérna upp á Bifröst. Þó svo að samfélagið sé lítið að þá gerist hellingur hérna uppfrá.....yfirleitt snertir það þó samskipti kynjanna en þó kemur fyrir að það koma einhver ný andlit hingað uppeftir í heimsókn en þá er bara tekið á þeim málum.....anyways.....þá vorum við að tala um  leyndarmál......hversu góður þarf vinur þinn að vera til að þú getir sagt honum allt......og þá meina ég ALLT.....eins og þegar þú pissaðir yfir tengdamömmu þína í fellihýsinu......þegar þú gubbaðir af þynnku á matarboðið á jólunum...með hálfa ættina á borðinu.....þegar þú svafst hjá "frænku" fyrrverandi kærustu þinnar....og svo mætti lengja telja. Hvað leynist svo í myrka horninu ykkar kæru vinir...???
01. júní 2007 klukkan 03:09
ebbiniho
Engin athugasemd
17febrúar

Jaaa.....hérna hér

Já, nýtt blogg. Þetta er líklega ekki það skemmtilegasta sem ég geri, væri kannski duglegri ef ég heyrði ekki svo oft í Bellu systir á msn eða í símanum.

Margt er búið að gerast frá síðustu færslu. Nenni kannski ekki að fara út í allt, enda er það á hinu blogginu mínu.

Það er að frétta af skólanum að ég er kominn með góðan námsleiða, nenni ekki að lesa og heimverkefnin gefa mér hroll, kannski ágætt að taka út þennan námsleiða áður en það styttist meira í próf.....Svo er ég orðinn gjaldkeri skólafélagsins, það á eftir að rigna inn ákærum áður en minn tími sem gjaldkeri líður.....neinei.....það er nú létt grín....það er stefnan hjá okkur í skólafélaginu að gera fína hluti (....*hóst*....efni í pólitíkus...)

Ætli þetta é ekki nóg í bili.....þangað til næst......

                                                                                                       ciao
17. febrúar 2007 klukkan 20:00
ebbiniho
Engin athugasemd
26nóvember

Búið....í bili

Þá er törnin búinn í bili, prófin kláruðust á fimmtudag með munnlegu prófi í vinnurétti. Strákurinn stóð sig með prýði þar.....(vona það allavega).......þá tók við ágætt djamm en það toppaði ekki kvöldið í gær, þá kláraði HHS sín próf og var heljarins húllumhæ á kafihúsinu og mikið dansað..........í kvöld er stefnan tekin á Grudge 2 í bíó...ég og maja erum búin að vera horfa á allskyns drauga og hrollvekju myndir eftir að við byrjuðum á bifröst....allt frá Halloween seríunni til klettastelpna sem voru étnar af afmynduðu fólki......þetta gerum við svona rétt til að halda hjartanu við.......


.....af því tilefni setti ég inn nokkrar draugamyndir frá því ég, júlli, júlía, maja og kristófer fórum í göngutúr í myrkrinu
í elliðardalnum...........sjáið þið drauginn sem við sáum???
26. nóvember 2006 klukkan 01:06
ebbiniho
2 athugasemdir
22nóvember

Prófin

Þá eru prófin hálfnuð. Segja má að fyrsta háskólaprófið hafi gefið manni á kjammann. Það var langt og strembið og voru margir hverjir mjög óánægðir með þetta próf, stór hluti sem náði bara að klára 2/3 af prófinu. Byrjaði sem sagt með látum. Svo kom lögfræðin í gær. Held að það hafi gengið ágætlega, en lögfræði er eins og lögfræði er.....þetta gæi verið rétt og gæti það ekki. Allavega, þá er ég núna á leiðinni í lokapróf í aðrsemisgreiningu....fagið sem hæsta falltíðnin er í .....en ég er bara bjartsýnn á þetta próf. Í dag, kvöld og í nótt tekur svo við lestur fyrir munnlegt próf í vinnurétti...það verður massaerfitt....




                                  .......leiter......
22. nóvember 2006 klukkan 17:51
ebbiniho
1 athugasemd
09nóvember

Allt á kafi

Eins og Bifrestingar hafa tekið eftir er löngum byrjað að snjóa hérna uppfrá.....sem er bara gott mál....óþolandi þetta slabb-ástand sem er alltaf í bænum.....allt í salti og skít. Þá er gott að vera hér í sveitinni.....nóg af snjó og engin drulla....ég, Svenni og Tryggvi nýttum daginn í dag til að taka nokkrar myndir. Misstum reyndar af sólinni.....en það koma fleiri fallegir dagar. Ég henti inn nokkrum myndum frá deginum......ætla svo að taka fleiri á næstunni.


                                                                   ciao.........
09. nóvember 2006 klukkan 03:17
ebbiniho
3 athugasemdir
04nóvember

Þ-heft lið

Stundum held ég að fólk sem vinnur í störfum þar sem ekki þarf að hafa mikið fyrir hlutunum sé bara þ-heft!! Ég geri ekki annað en að lenda á fólki sem er með kúkinn upp á bak þegar það er að þjónusta mann. Ég ætla ekki einu sinni að reyna lýsa því hér hvernig þetta var með þjónustufulltrúann minn í KB-Banka í fyrra....#$#$$#%%.
Nú um daginn lenti ég í því að ég fékk ekki húsaleigubætur, ákvað að hringja í félagsþjónustuna í árbæ....."þú ert með lögheimili skráð í Borgarbyggð".....WHOT......ég sótti um aðetur hérna uppfrá í haust....búinn að fá h-bætur fyrir sept og okt....það tók þetta lið sem sagt tvo mánuði að fatta að ég hefði verið með lögheimili hérna á bifröst. Þannig að nú býst ég við því að þurfa jafnvel að endurborga þessar bætur fyrir síðustu mánuði. Allavega hringdi í hagstofuna til að vita hvað hefði gerst.....hvort þau hefðu bara upp úr þurru ákveðið að færa lögheimilið mitt....."bíddu við...hver er kt þín??"......"heyrðu ég ætla að gefa þér samband við hana ####".......samband slitnar Öskrandi......reyni aftur......"já þú aftur....ég ætla að gefa þér samband við ####"...bið í FO##ING 10min....."já það passar þú ert með lögheimili á Bifröst".....svo breyti ég því daginn eftir......vantar þessar bætur!!!.....hringi í hagstofuna eftir að ég faxa tilkynningu um aðsetursskipti...."getið þið látið félagsþjónustuna í árbæ hafa tilkynningu um að ég hafi breytt þessu...svo að ég fái bæturnar mínar....."við gerum ekki svoleiðis"...."ha??...voruð það ekki þið sem færðuð lögheimilið mitt fyrir slysni??"...."þú getur fengið búferlavottorð hjá okkur....það kostar 600kr"....."ég hringi bara sjálfur í félagsþjó.....bípppp"....lagði á h####### m######......

Það er ekki einfalt að vera nemi og þurfa berjast við hinar ýmsu stofnanir


Veni, vidi, vici
04. nóvember 2006 klukkan 18:55
ebbiniho
Engin athugasemd
01nóvember

Ég elska alla siði mannsins, þó svo að sumir mættu vera í felum.

Sárt þótti mér í gær að horfa upp á chelski ná stiginu á móti barca, eiður búinn að koma barca yfir og allt lék í lyndi. Þeir hreinlega léku sér á köflum, í fótbolta, þó annað sé hægt að segja um chelsea liðið. Þeir eru með kjána eins og drogba, essien og carvalho. Drogba lék eins og litlu strákarnir þegar þeir henda sér í grasið við minnstu snertingu. Greyið essien, hann er kannski hreinlega bara of sterkur, veit það ekki, en sumar ákvarðanir hans eru stórfurðulegar, hann á tæklingar sem stundum er erfitt að skilja og þá á ég eftir að nefna ruddann hann carvalho, tæklaði samherja sinn í landsliðinu, Deco, í mjöðmina af ásettu ráði. Terry fyrirliði enska landsliðisins sparkar boltanum í liggjandi mann, þvílík fyrirmynd....Þetta á sér allt rót og hún er Mourinho....hann er tapsár hrokagikkur með minnimáttarkennd, talar um hvað þeir séu góðir þegar þeir vinna leiki. Svo fer hann alltaf í sálfræði og rugl inn á milli, talar um að liðið sitt fari vængbrotið til barcelona og það verði engir sóknarmenn...blablabla.....svo er hann kvartandi í fjölmiðlum að eiður og barcelona liðið séu að henda sér í jörðina og séu stjörnur sem eru verndaðar.....sér hann ekki sitt lið þegar þeir spila???....hann er með drogba og robben sem eru mestu leikarar í enska boltanum!!!

Jæja ætla nú kannski að velta mér of mikið uppúr þessu. Þarf að skella mér í lærdóm, það er alveg brjálað að gera...............ég kem aftur!!!
01. nóvember 2006 klukkan 16:31
ebbiniho
2 athugasemdir
27október

God make use of who ever he pleases......even an old tiger like me

Hinn frábæri Pétur Ben heiðraði okkur með nærveru sinni á Bifröst í gær. Hann kom og tók lög af nýju plötunni hans Wine For My Weakness, sem er vægast sagt stórgóð plata. Ekki voru tónleikarnir síðri, hann er alveg frábær "performer", lét fólk sem drakk aðeins of mikið í vísindaferðinni ekki trufla sig, pluggaði gítarinn úr sambandi og heillaði þá sem komu til að hlusta. Lög eins og Pack Your Bags, I´ll be here, White Tiger, Wine for my weakness ásamt ábreiðum sem hann tók eftir m.a Johnny Cash, Jim Morrison og Michael Jackson gleymast seint. Vonandi að hann geti komið aftur seinna. Ég segi fyrir minn part - takk..takk
            
Pétur Ben á Iceland-Airwaves


       o&o..........og p.s. hvet alla til að skoða heimasíðuna hans á myspace
27. október 2006 klukkan 20:51
ebbiniho
4 athugasemdir

Aðalvalmynd